|
|
01.08.2006 01:53:33 / maar
Við erum komnir með nýja síðu sem er miklu flottari en þessi, og
við munum setja fullt af nýjum myndum á næstunni.
www.magnar.bloggar.is/
»
25.07.2006 19:35:05 / maar
Hæ Bændur og Borgarbörn!!!
Langt siðan maður hefur bloggað eins og vanalega en Addi er nú
búinn að reyna að halda uppi stemningunni hérna á blogginu við
ágætis undirtektir. Við erum að tala um 10 daga í þjóðhátið, algjör
snilld og vá hvað það verður gaman.
Það er flott að frétta, erum búnir að slá FH og VAL útúr
bikarnum og erum komnir í undanúrslit sem er bara gaman og eigum
við það svo sannarlega skilið.
Eigum við ekki bara að segja lalalala lala 
Pabbi gamli er 50 ára í dag og óska ég honum tilhamingju með
afmælið :*
Svo um næstu hegi erum við vikingarnir að fara í massa ferð með
stjórninni , Sigurrós tónleikar einhverstaðar úti sveit á
föstudeginum, river rafting á laugardeginum og svo um kvöldið
verður djammað á króknum, og gistum við þar á hótelinu, stjórnin
okkar er sú besta bara held ég algjörir snillingar nema það að þeir
skulda mér enn ipodinn sem ég átti að vinna fyrir að vinna golfmót
víkings,
en hafið það gott og sjáumst 
»
20.07.2006 13:02:53 / maar
Úr hvaða mynd er þessi fleyga settning sem er í titlinum,
rauðvínsflaska í boði fyrir rétt svar.
Jæja loksins er komin sól á klakanum og er það helber snilld og
nóg að gerast þessa dagana, og síðan hefur maður nú bara verið að
horfa á Rock Star, Magni hefur nú bara verið miklu betri en maður
bjóst við, hann var reyndar kjánalegur í fyrsta þættinum en síðustu
tveim hefur hann verið hörku góður og með þeim betri. En ég ætla nú
ekki að taka þjóðarrembingin á þetta og halda með honum, ég ætla
bara halda með þeim sem mér þykir bestur og flottastur, og það er
hún Dilana sem er eini alvöru töffarinn þarna, ber höfuð og herðar
yfir aðra keppendur þarna og er í raun allt of góð fyrir þessa
hljómsveit sem verið er að býtast um að komast í.
Síðan er að koma helgi, þetta er grilllhelgi það er bókað mál,
grill og bjór er uppskrift helgarinnar, það er bókað mál. En annars
er ansi mikið að gerast á næstunni, allavega hjá mér, það eru
vestmannaeyjar og síðan varð ég mér úti um miða á meistara Morrisey
í höllinni 12 Ágúst, svo er það bara orðið staðfest að maður
heldur bara af landi brott í Sept í hálft ár í hið minnsta, í
land nautaats, margarítu, flamengo, fótbolta, skemmtana og svo
lengi mætti telja. Það er altént komin tími til að maður taki sér
smá frí frá klakanum, þannig að maður verður að nota
tímann þangað til vel með sínum frábæru vinum.
En allavega gott veður kætir lundina, þannig að fólk ætti nú að
bregða fyrir sig betri fætinum þessa helgina, allavega ætla ég að
gera það og auðvitað Maggi beauty, þá sjaldann að maður lyfti sér
upp 
Já vel á minnst horfði einhver á Nine 1/2 Weeks á Sirkus í
gær, djöfulsins snilld, Kim Basinger og Mickey Rourke eru svakaleg
þarna, ótrúlegur kynþokki í gangi, vonandi að þeir sýni síðan bara
Bitter Moon næst, þá erum við að tala um kynþokka í lagi, annars
hefur sólarorkan þessi áhrif, það kemur einhver smá losti í mann,
maður svitnar meira og fær smá púka í sig 
En allavega er ég farinn að sóla mig, Kveðja Arnar jákvæði

Adios
Prógrammið
Út
í Eyjum var Einar kaldi
Morrisey
Viva
Espana
»
16.07.2006 10:27:13 / maar
Jæja maður verður víst að henda inn pistil víst að Maggi gerir
það ei, annars vil ég nú benda fólki á tíma og
dagsettninguna á þessu, kl er núna 10:10 á
Sunnudagsmorgni og ég er eldhress, búinn að vera vakandi síðan
7:30 enda proper og vinnandi maður, ekki sífullur eins og restin af
vinahópnum annars er ósköp lítið til að skrifa um enda talar fólk
ekki um annað en veðrið á þessu skeri, enda er það skelfilegt.
Annars tók maður nú vel á því á Föstudaginn enda sló Þorbjörn
vinur minn upp til veislu með Dönsku þema og þangað hélt ég nú og
fékk mér nokkra bjóra og hvort maður hafi ekki skolið niður einum
til tveim GT í leiðinni, síðan hafa nú Danirnir eflaust fengið sér
Gamle dansk og vínarbrauð morgunin
eftir.En allavega hélt maður seint og síðar meir
niðrí bæ, kíkti í eina mínútu á Rósenberg en það var nú bara rétt á
meðan beðið var eftir restinni af grúppuni. Þá varð Hressó fyrir
valinu og kíktum við þangað inn, síðan Celtic Cross sem er ávallt
hressandi, síðan var maður plataður á Hverfis en það var sama
braggafýlan og venjulega þannig að maður stakk af á Vegamót en
endaði á 22 sem er nátturulega epall. Annars er þetta bara einhvað
bévítans þvaður um ekki neitt, eina sem þó hægt er að skrifa um er
ef maður bregðir fyrir sér betri fætinum og fer að bursta
skónna.
Síðan voru bara einhverjir helvítis tollheimtumenn og faresear
sem réðust bara á hann Magga minn þegar hann ætlaði í mesta
sakleysi að fá sér Pizzu en viltist einhvað á leiö, hann er búinn
að vera á fljótandi fæði því hann getur einungis notað
rör eftir þessa leiðinda árás, alltaf leiðinlegt þegar proper
og siðsamir menn eins og Maggi verða fyrir aðkasti frá einhverjum
braggalýð.
Síðan finn ég engan með mér til þess að skella sér með mér til á
heitari slóðir í viku eða svo, fólk vill bara halda til Heimaey í
staðinn , og það sem meira er þá virðist ég ætla sætta
mig við orðinn hlut og fljóta með þessu liði á þessa treasure
island, mjög súrt að mínu mati og ég er alveg laus við að hlakka
til þess að fara þangað, en eins og sagt er ef væntingunum er
haldið niðri þá kannski fær maður einhvað meira en maður bjóst
við(og ég býst ekki við neinu af þessari hátíð) , bara áfengispúkar
sveimandi um loftin þarna.
Annars er ég búinn að skoða þann möguleika ansi vel að flytja af
landi brott, bara one way ticket to the blues og drulla sér af
þessu skeri, annars búinn að vera í sambandi við konu
sem ætlar að leigja út herbergið sitt sem statt er í höfuðstað
Spánarveldis, hljómar draumi líkast og vonandi nær maður að koma
þessu í gegn, bæta aðeins við yfirdráttin og vera síðan í smá
spænskuskóla með, sitja síðan á útikaffihúsum og drekka Aquila bjór
þannig að pack pack up your troubles women, en ef þetta klikkar þá
lýtur út fyrir að ég leigji hjá Ellanum þangað til ég fæ íbúðina
mína afhenta, það væri nú lífsreynsla útaf fyrir sig, annars er
Elli orðinn svo stilltur að maður fer varla að þekkja hann lengur,
hann vill helst bara halda sig heima við í Æsufellunum og spila
lúdó við Afríska vin sinn.
Jæja ég þarf að halda áfram að vinna fyrir salt í
grautinn........bæbæ

Þetta eru forljótar helvítis túttur, þú getur bara gengið í þeim
sjálf.
»
04.07.2006 10:01:04 / maar
Jæja hver er til í að kíkja út í Ágúst til Króatíu, held að það
sé nú bara nauðsynlegt fyrir sálina meðað við hvernig þetta sumar
er að þróast. 49-57 kall með flug og hóteli í viku, kostar
varla krónu að lifa þarna eins og kóngur þannig að fólk er í
heildina séð ekkert að koma kannski mikið verr út en t.d að
vera verslunnarmannahelgi í Vestmannaeyjum, og ef einhver heldur að
það sé skemmtilegra að vera í Eyjum en Króatíu er sá hinn sami
bóndadurgur frá helvíti, annars ætla ég nú líklega bara gera bæði,
Visa verður bara besti vinur minn .
Annars er nú lítið að frétta, Ég Maggi, Donni, Einsi og JóLá
gáfum Ella stórkostlega innfluttningsgjöf á Laugardaginn, Gasgrill
með öllu tilheyrandi en síðan vantaði nú einhverja hluti í þetta
þannig að ekki gátum við grillað allt kjötið sem við komum með, en
heimili Ella verður þó pottþétt grillpartýstaður framtíðarinnar.
Annars var þetta bara eins og hvert annað partý í Æsufellunum hjá
honum Ella okkar, haglabyssur, handrukkarar með vélsagir, krakk,
vændiskonur, dvergar ofl í þeim dúr.
Síðan fór nú draumur minn fyrir lítið og ég er greinilega engin
Nostradamus, en annars er maður komin með yfirdrifið nóg af
knattspyrnu, of mikið að spila þetta og horfa líka, annað hvort
verður að víkja eða bara bæði 
Altént þá er það Króatía í Ágúst ef einhver vill koma
með..........................
Later
Kv. Arnar
Króatía
Vestmannaeyjar
»
30.06.2006 15:00:59 / maar
Jæja mig dreymdi að Þýskaland myndi vinna Brasilíu í úrslitaleik
1-0 með marki frá Lahm í uppbótartíma, ekki er ég mikill
stuðningsmaður Þýskalands en varð bara koma þessu að, kannski maður
ætti að leggja einhvað undir. Annars er nú mest lítið að frétta
fyrir utan það nema Magga tókst að plata mig til Eyja um helgi
verslunarmanna, ég er mjög skeptískur á þetta en læt þó á reyna í
þetta skiptið.
Kv. Arnar

»
26.06.2006 17:15:24 / maar
Sumarið næstum hálfnað en samt hefur ekkert sést til sólar, en
vonar maður ekki bara að júli mánuður eigi eftir að verða
stórkostlegur. Fótboltinn rúllar vel og held ég að við séum að koma
flestum á óvart með spilamennsku okkar en ég er alls ekki hissa
vissi alveg hvað við gátum fyrir tímabilið. Arnar og Einar eru ekki
alveg að brilljera þessa daganna , þó svo að arnar sé
langmarkahæstur og spjaldahæstur hjá Eldingunni þá dugar það ekki
til, kannski vantar bara Maggann i lið þeirra til að lyfta upp þeim
móralska lika. Arnar er kominn með íbúðina sína og erum við búnir
að vera að mála hana á fullu og þó svo að hann Addi minn sé klár á
mörgum sviðum er hann alveg sá skelfilegasti í því að mála , en
maður getur ekki verið meistari í öllu.
Þjóðhátíðin nálgast óðum og er ég orðinn hrikalega spenntur
fyrir henni enda ætlar Arnar að fara í fyrsta sinn, Elli er að fara
, Ranni ætlar og haugur af öðru fólki, ekki má gleyma Gussa Jó og
vinkonum hennar sem ætla líka, og verður maður líklega eitthvað að
passa uppá allt þetta fólk þarna úti, sumir eiga það til
að drekka of mikið og of hratt stundum. Svíaarnir og minn Zlatan
skitu uppá bak á HM en maður getur ekki alltaf verið bestur eins og
ég nefndi hérna fyrir ofan.
Við Víkingarnir fórum í golf og grill á föstudaginn, og geti
menn, Ég rústaði golfinu og fékk að verðlaunum Ipod Nano, einhvern
íþróttagalla og eitthvað. Maður er greinilega natural talent í
þessu. Svo var mætt í grill í víkinna en nei nei , Rannver þurfti
að vera 45 min i sturtu og klæða sig og svo bíða í enn einn
hálftimann eftir litlabróðir sínum til þess að greiða sér ,
píkulyktin fannst sko alla leiðina til Færeyja af kvikindinu, og
við misstum af grillinu, nautalundirnar voru búnar og það voru
nokkrir hamborgarar eftir en maður drak sig bara mettann af ölinu
sem var einnig í boði stjórnarinnar.
Eins og þið heyrið er allt gott að frétta af mér og mínum og
vonandi fáið þið að heyra meir af mér enda arfa slakur i blogginu
þessa daganna og verð að fara að bæta úr því.
Kv. Maggi
»
15.06.2006 02:11:38 / maar
Jæja ég ætla henda hérna inn smá málamyndunarpistli hérna til
þess að maður geti ennþá sagst vera bulla einhvað. Maður er á
einhverju næturbrölti enda engin vinna á morgun, annars er lítið að
frétta af mér og Magga Zwayze, Maggi er nú bara orðinn alger
kópavogsrotta, hann er meira segja byrjaður að stunda pöbbana þar
og nennir ekki að kíkja á okkur vinina hans sem eiga heima í
siðmenningunni , annars var nú síðasta helgi hressandi, HM - Bjór -
Grill, hinn fullkomna þrenna myndi maður nú halda, á föstudaginn
kíkti ég í heimsókn til æskuvinar míns Þorbjörns og kíktum við
á ansi hresst djamm eins og okkar er von og vísa og máluðum við
bæinn rauðann um alla nóttina, fórum við á Hressó sem var mjög
hressó   , síðan lá leiðin upp Laugarveginn á
fleiri öldurhús.
Það var byrjað snemma á Laugardag í bjórnum hjá mér Agli og
Ella eða nokkurnveginn um leið og fyrsti leikur byrjaði, síðan
var glápt sötrað og loks grillað um kvöldið og litu nokkrir
skemmtilegir gestir á okkur, milli leikja tókum við Singstar sem ég
undirritaður sigraði nokkuð öruglega, enda mikill gullbarki og náði
fullkomnu stigaskori þegar ég tók Tom Jones. Elli var byrjaður að
einoka Singstarið á á vissum tímapunkti um
kvöldið og endaði það eins og venjulega þegar Elli rífur upp
míkrafóninn að nágranarnir kvörtuðu og hringdu á lögregluna,
playstation talvan var gerð upptæk og Elli var áminntur um að hækka
róminn ei meir . Síðan lá nú bara leiðin niðrí bæ þar sem
kíkt var öldurhús bæjarinns, mikill hiti var á flestum stöðum, eins
og oft vill verða þegar glösin eru orðin mörg að
maður skellir sér út á dansgólfið og þykist vera einhvert
Travolta, en það var svo heitt að maður er meira bara eins
og kófsveittur geðklofi . Síðan var það bara
Sunnudagur fyrirgefningarinnar þar sem maður lá í mógi og horfði á
sjónvarpið.
Síðan fær maður nú bara íbúðina sína nýju á Moonstreet afhenta í
kringum helgina, þá tekur við málningarvinna ofl skemmtilegheit,
heill her af góðum vinum ætlar að hjálpa mér að mála þannig að það
ætti ekki að vera lengi gert, síðan stendur nú að leigja hana út í
hálft ár eða svo, og á meðan jafnvel kíkja á heitari slóðir, one
way ticket to the blues eins og mætur maður sagði.
Síðan væri nú gaman að vita hvað planið hjá fólki um
Verslunarmannahelgina, London, Vestmannaeyjar, Rvík eða bara taka
nettann sumarbústað, það er allavega ekki stjarnfræðilegur séns að
ég fari til Eyja ef ég þarf að sofa í tjaldi.
Síðan er það næsta helgi, hugsa að maður kíkji bara út á lífið,
þá sjaldan að maður lyfti sér upp.
Kv Arnar

»
02.06.2006 21:37:57 / maar
 Þetta er hinn goðsagnakenndi leikari Patrick
Swayze, eruði að tékka hvað gæinn er ótrúlega líkur Magga á
myndinni hérna til vinstri þar sem hann er ungur, þetta er
alveg sláandi, Maggi ég held að þú ættir að skella
þér í DNA.
»
01.06.2006 12:51:31 / maar
Jæja Maggsi hérna , komin mánaðarmót og allir eru í góðu skapi
nema veðurguðirnir þeir eru eitthvað íllir úti okkur íslendingana.
Addi var að kaupa íbúð og fær hana afhenta um miðjann þennan mánuð
og óskum við eftir sjálfboðaliðum í flutninga og málningarvinnu. Í
boði fyrir þá sem koma verður Pizza, bjór og svo fá þeir að body
painta mig og adda.

Talandi um Adda þá er hann að fara að keppa í vköld í Visa
Bikarnum gegn KV og hvet ég alla til að mæta uppí Varmá kl. 20:00
og styðja við bakið á þessum knáa hnáta.
Gussi lenti í árekstri í gær, hún var stopp á rauðu ljósi að
háma í sig ís þegar snarbiluð kona bombaði í rassgatið á henni og
flaug Gussi á bílinn fyrir framan og ísinn fór útum allt , en sem
betur fer fór þetta ekki það ílla en hún er aum í hálsi og baki.
Við Piltarnir höfum opnað reikning fyrir stúlkugreyið til að
styrkja hana í endurhæfingunni hennar sem mun fara fram á
Göngudeildinni við Grensásspítala , tökum á móti frjálsum
innleggjum á reikning 0330-26-1092, verið nú hugulsöm og styrkjið
þessa stúlku og hvetjið hana í gegnum erfiða tíma sem nú verða
framundan. Ég var einmitt að koma frá henni núna en gaf ég henni
pizzu og Friends seríu í vorkunnar gjöf. 
Það er nóg að gerast um helgina , Reykjavik Tropical
tónleikarnir eru á háskólasvæðinu alla helgina og er ég spenntur
fyrir laugardagskvöldinu, en þá eru meðal annars Jeff Who?, Leaves
og Supergrass að spila og eru þetta allt eðal hljómsveitir.
Annars þá ætlum við PILTARNIR að bjóða í grill á
laugardagskvöldið í athvarfi okkar við Hjarðarhaga 24 og eru allir
velkomnir, especially brjóstagóðar stúlkur og well hung piltar.

»
01.06.2006 12:49:24 / maar
Jæja Maggsi hérna , komin mánaðarmót og allir eru í góðu skapi
nema veðurguðirnir þeir eru eitthvað íllir úti okkur íslendingana.
Addi var að kaupa íbúð og fær hana afhenta um miðjann þennan mánuð
og óskum við eftir sjálfboðaliðum í flutninga og málningarvinnu. Í
boði fyrir þá sem koma verður Pizza, bjór og svo fá þeir að body
painta mig og adda.
Talandi um Adda þá er hann að fara að keppa í vköld í Visa
Bikarnum gegn KV og hvet ég alla til að mæta uppí Varmá kl. 20:00
og styðja við bakið á þessum knáa hnáta.
Gussi lenti í árekstri í gær, hún var stopp á rauðu ljósi að
háma í sig ís þegar snarbiluð kona bombaði í rassgatið á henni og
flaug Gussi á bílinn fyrir framan og ísinn fór útum allt , en sem
betur fer fór þetta ekki það ílla en hún er aum í hálsi og baki.
Við Piltarnir höfum opnað reikning fyrir stúlkugreyið til að
styrkja hana í endurhæfingunni hennar sem mun fara fram á
Göngudeildinni við Grensásspítala , tökum á móti frjálsum
innleggjum á reikning 0330-26-1092, verið nú hugulsöm og styrkjið
þessa stúlku og hvetjið hana í gegnum erfiða tíma sem nú verða
framundan. Ég var einmitt að koma frá henni núna en gaf ég henni
pizzu og Friends seríu í vorkunnar gjöf. 
Það er nóg að gerast um helgina , Reykjavik Tropical
tónleikarnir eru á háskólasvæðinu alla helgina og er ég spenntur
fyrir laugardagskvöldinu, en þá eru meðal annars Jeff Who?, Leaves
og Supergrass að spila og eru þetta allt eðal hljómsveitir.
Annars þá ætlum við PILTARNIR að bjóða í grill á
laugardagskvöldið í athvarfi okkar við Hjarðarhaga 24 og eru allir
velkomnir, especially brjóstagóðar stúlkur og well hung piltar.

Addi var svo að kaupa sér íbuð og fær hann afhent um miðjan júni
og óskum við eftir sjálfboðaliðum í flutninga og málningarvinnu en
i boði verður pizza og bjór fyrir þá sem koma.
»
25.05.2006 13:43:13 / maar
Einar greyið ýmsar raunir hrjá
ekkert má skáldið hugga.
Inn í stofu tyllir sér á tá
með tittlinginn út í glugga.

Sól sól skín á mig lass lass burt með þig, jæja núna er
fimmtudagsfrídagur, það eru kosningar á Laugardaginn, um að gera að
hugsa sig vel um áður en gengið er að kjörborðinu. En samt
virðast gríðarlega margir ætla bara kjósa það sem vinur sinn eða
Pabbi sinn ætla að kjósa, eða bara flokkinn sem býður í bestu
partýin. Annars vinnur Maggi Beauty hörðum höndum um að fá
kjósendur fyrir framsóknarflokkinn, ekki öfundsvert hlutverk þar á
ferð , annars er ég löngu búinn að ákveða hvað ég kýs en ætla
þó ekki að ljóstra því upp enda er ég ekkert sérstaklega stoltur af
því en tel nú þetta þó vera skársta kostinn.
Síðan er nú bara að koma helgi, en í dag er Fimmtudagur og síðan
kemur Föstudagur en eftir það kemur Laugardagur og síðan
Sunnudagur, á morgun er fótbolti, síðan er Elías hinn Fagri með
örlitla veislu í nýju flottum húsakynnum í Harlem Rvík um
kvöldið, síðan er nú skylda að fá sér í tánna með kosningunum,
síðan er bara Sunnudagur fyrirgefningarinnar.
Arnar.......
»
17.05.2006 21:56:44 / maar
Vill byrja á því að biðjast afsökunar á þessu endalausa
bloggleysi, en skal reyna að bæta úr því og vera duglegur að leggja
inn pistla. Lífið gengur bara vel þessa daganna, prófin búin,
vinnan er snilld and the life floats on eins og þeir segja.
Spiluðum við Fylki í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar siðasta
sunnudag og skitum á okkur og töpuðum 2-0 eftir annars ágætann
leik, frekar ósanngjarnt en svona er þessi bolti. Arnar og Einar
skítu samt alvarlega uppá bak og töpuðu fyrir Reyni Sandgerði 3-0.
Elli fékk ekki að vera í hóp hjá´ÍR og skil ég ekki alveg þessa
ákvörðun hjá þjálfaranum hans. Randver aka Big Mac er kominn heim
from the States og er virkilega gaman að kallinn sé kominn á
klakann en hann mætti alveg kaffi brúnn á fimmtudaginn
seinasta.

Eurovision forkeppnin er svo á morgun og ég er á þeirri skoðun
að Silvia eigi eftir að brilljera eða gera skandal og komast ekki
áfram, en annars er ég orðinn virkilega þreyttur á þessi silviu
nætur æði sem er búið að heltaka allt ísland, hún er allstaðar ,
það er gjörsamlega buið að nauðga laginu hennar og það er verið að
auglýsa hana svo hikalega mikið að það er algjörlega óþolandi. En
engu að síður verður gaman að fá sér nokkra bjóra með keppninni svo
á Laugardaginn.Annars eigum við leik við Keflavik á föstudaginn í
Keflavik og hvet ég alla til að mæta þangað og styðja við bakið á
fallegasta liði landsins.
Annars er voða fátt að frétta, það er alveg yndislegt að búa
svona einn og vera sinn eiginn herra. Ef ég vissi hvað þetta væri
frábært væri ég löngu farinn úr kjallaranum hjá ömmu og afa. Elli,
Arnar og Einar eru allir bunir að kaupa sér íbúð og óska ég þeim
tilhamingju með það. Það eru nóg af partý pleisum núna fyrir
sumarið sem er mesta snilld í heimi 
Börsungar voru að taka Arsenal í kvöld 2-1 og er það mesta
snilld i heimi, djöfull þoldi ég ekki leikaraskapinn í
Eboue sem leiddi til þess að Arsenal skoraði eftir
aukaspyrnuna. En Arsenal varðist vel en eftir að Henrik Larsson kom
inná breyttist leikur Börsunga algjörlega og lagði hann upp bæði
mörk Barcelona.
Hérna er hetja kvöldsins og verður gaman að sjá hann á HM í
sumar. 
Kv. maggi
»
08.05.2006 17:28:33 / maar
Sumarið er komið og það er mesta snilld i heimi að geta gengið
um á bara bolnum án þess að krókna úr kulda. Boltinn að fara að
rúlla á fullu og eigum við 1sta leik í vikinni á sunnudaginn kemur
kl. 16 gegn Fylki, allir að mæta Voða fátt að frétta, vinna,
læra, æfa og vesinast fyrir Björn Inga og co. Minna alla í leiðinni
á það að kjósa exbé í borgarstjórnarkosningunum. Maður hefur verið
alltof latur við það að blogga undanfarið og hef ég í raun enga
afsökun fyrir því en ég ætla að reyna að fara að bæta mig, þú lika
addi!!!
»
01.05.2006 23:55:50 / maar
Ringleader of the Tormentors
http://myspace.com/morrissey
Gamli bara sjaldan verið betri og beittari.

Kv.Arnar St....
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|